Það er ávallt markmið Stálvíkur að veita framúrskarandi þjónustu. Viðskiptavinir hafa ólíkar þarfir og við teljum sveigjanleika vera grunnatriði í framúrskarandi þjónustu. Allir starfsmenn okkar eru vel upplýstir þegar kemur að öryggi, heilsu og umhverfismálum enda er það markmið okkar að allir komi heilir heim.

Þjónusta

Um okkur

Eigendur Stálvíkur hafa áralanga reynslu úr faginu sem vélvirkjar, stálsmiðir og tæknimenn úr hverskonar iðnaði. Þar ber helst að nefna, byggingaiðnað, stóriðju, sjávarútveg og matvælaiðnað.

Með því að sameina krafta okkar og áralanga reynslu getum við komið til móts við fjölbreyttar þarfir viðskiptavina. Við bjóðum upp á heildarlausnir í hönnun, nýsmíði og viðgerðum. Við komum með hugmyndir, hönnum, teiknum og smíðum og viðskiptavinir okkar geta verið vissir um að allt sem gert er fylgir gildandi reglugerðum og stöðlum.

Skoða nánar