Hjá Stálvík starfar hópur sérfræðinga á sviði málm og tæknigreina. Þar sameinum við þekkingu málmiðnaðamanna og tæknifræðinga og náum þannig besta hugsanlega árangrinum fyrir viðskiptavini okkar. Þannig getum við veitt viðskiptavinum okkar ráðgjöf og þjónustu í sérflokki sem tengist stálsmíði og vélbúnaði. Allt frá því að skissa upp einfalda hluti fyrir smíði, í flókna þrívíddarhönnun með fullbúnum smíðateikningum sem einfalda alla smíði. Þannig bjóðum við upp á heildarlausn í hönnun, smíði og uppsetningu eða “turn key solution“ eins og gjarnan er sagt í faginu.