Eftir náið samstarf við aðila í matvælaiðnaði hefur Stálvík verið að fikra sig inn á þann markað með góðum árangri. Við höfum meðal annars aðstoðað viðskiptavini okkar í endurbótum á búnaði sem ekki uppfyllir kröfur eða þarf að breyta einhverra hluta vegna. Einnig höfum við góða reynslu af því að hanna og smíða búnað fyrir matvælaiðnað þannig að hann uppfylli staðla og standist ýtrustu öryggiskröfur.